Sunnudagaskólinn er alla sunnudaga yfir veturinn kl. 13 í Lágafellskirkju en í þetta skiptið verður sunnudagaskólinn sameiginlegur með Reynivallaprestakalli, staðsettur í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 2. hæð. Foreldrar og börn sameinast í söng og gleði í kirkjunni. Fræðslan miðast við þarfir barnanna en allir geta notið með.

Umsjón með sunnudagaskólanum hafa þau Bogi Benediktsson, Petrína og Þórður organisti.