Hjónavígsla
Kirkjuleg hjónavígsla er helgiathöfn þar sem tveir einstaklingar strengja þess heit að ganga saman æviveginn, lýsa yfir þeim vilja sínum í áheyrn votta að vilja vera hjón og handsala síðan þann sáttmála.
Algengast er að hjónavígsla fari fram í kirkju. Þó getur prestur framkvæmt hjónavígslu í heimahúsi eða jafnvel utandyra. Tveir vottar eða svaramenn þurfa að vera viðstaddir.

Undirbúningur
Áður en hjónavígslan fer fram þarf að fylla út könnunarvottorð sem finna má á heimasíðu sýslumanna. Hjónavígsla getur ekki farið fram fyrr en prestur hefur fengið útgefið vottorðið í hendurnar.

Athöfnin
Kirkjuleg brúðkaupsathöfn er hátíðleg og falleg stund þar sem brúðhjón heita hvort öðru trúnaði, kærleika og stuðningi frammi fyrir Guði, fjölskyldu og vinum. Athöfnin einkennist af bæn, ritningalestri, tónlist og hjónavígslu prestsins. Hún markar upphaf sameiginlegrar vegferðar hjónanna og er um leið gleðistund þar sem ást og skuldbinding eru staðfest í helgu samhengi kirkjunnar.
Hjónavígsla í kirkju
Það sem greinir kirkjulega hjónavígslu frá borgaralegri er fyrst og fremst ákveðin afstaða brúðhjónanna til kristinnar trúar . Þetta er kristin hjúskaparstofnun. Þessvegna verður amk annað brúðhjónanna að tilheyra Þjóðkirkjunni og gert er ráð fyrir því að ef hjónin eignast börn að þau verði alin upp í kristinni trú. Kirkjubrúðkaup er því grundvöllur að kristnu heimili.


