Útfarir og greftranir
Jesús sagði: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Jh.11.26.
Hinsta kveðja
Þegar einhver úr söfnuðinum fellur frá fer fram útfararathöfn, yfirleitt í kirkju, og að henni lokinni greftrun í kirkjugarði. Undanfari útfararinnar er kistulagning, sem er bænastund með aðstandendum þegar hinn látni hefur verið lagður í kistu og áður en henni er lokað. Einnig er algengt að prestur leiði stutta bænastund með fjölskyldu og ástvinum við andlátið eða skömmu síðar, til huggunar og styrktar á erfiðri stundu.

Í kristinni útfararathöfn sameinast sorg og von. Við kveðjum ástvini okkar í trausti á kærleika Guðs og með þeirri von sem kristin trú boðar um upprisu og eilíft líf. Kirkjugarðurinn er helgur staður þar sem minning, þakklæti og von mætast.
Hvert get ég leitað?
Prestar veita allar nánari upplýsingar og veita aðstendendum þá aðstoð sem þarf við undirbúning útfarar. Útfararstofur veita jafnframt mjög góða þjónustu í þessum efnum.
Velkomið er að hafa samband við presta Esjuprestakalls. Þau veita ráðgjöf og sálgæslu í öllum aðstæðum lífsins jafnt gleði og sorg.

