Söfnun Hjálparstarf Kirkjunnar

Ár hvert taka fermingarbörn í Lágafellssókn þátt í söfnun hjálparstarfs kirkjunnar þar sem peningarnir eru nýttir til styrktar vatnsverkefna hjálparstarfs kirkjunnar í þremur löndum í Afríku, Malaví, Úganda og Eþíópíu.  Í fræðslunni eru börnin frædd  um aðstæður í löndum Afríku, sérstaklega um skort á hreinu vatni. Þau heyra um árangur af verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar hvernig hægt er að safna rigningarvatni og grafa brunna sem gjörbreytir lífinu til hins betra. Sjúkdómum og dauðsföllum fækkar, stelpur komast frekar í skóla, þegar þær eru ekki uppteknar við að sækja vatn, margar ferðir, margra km leið, og mæður fá meiri tíma til uppeldis og ræktunar. Með því að ganga í hús gefa þau Íslendingum tækifæri til að leggja sitt af mörkum til aðstoðar þeim sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni.

Nú í ár, haustið 2023 ganga börnin í hús og safna miðvikudaginn 8. nóvember kl. 17:30 – 21:00.

Upplýsingar um söfnunarátakið má finna með því að fara á heimasíðu hjálparstarfs kirkjunnar