Þá hefst nýtt upphaf og Kyrrðardagar í Mosfellskirkju

Haustið 2022 verða tvennir Kyrrðardagar 24. september og 1. október

moskirkja

Í tengslum við kristna íhugun verða eftirfarandi Kyrrðardagar á Mosfelli haustið 2022:

Laugardagur 24. september kl. 9:00 til 11:00 í Mosfellskirkju. Iðkuð verður kyrrðarbæn, gengið um Mosfellsdalinn og Lectio Divina, biblíuleg íhugun.

Laugardagur 1. október kl. 9:00 til 11:00  í Mosfellskirkju. Iðkuð verður kyrrðarbæn, gengið um Mosfellsdalinn og Lectio Divina, biblíuleg íhugun.

Kyrrðardagar á aðventu:

Nánar auglýst síðar.

  • “Gríptu daginn” – Íhugun – kyrrð – útivera. Kyrrðardagar í Mosfellskirkju
    Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 11:00 í og við Mosfellskirkju
    Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
    Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni þar sem farið verður í Biblíulega íhugun.
    Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þau gjarnan upplýsingar. Skráning er á netfangi safnaðarins, lagafellskirkja@lagafellskirkja.is eða í síma 5667113 á skrifstofu frá 9 -13. Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.