Súpusamverur í safnaðarheimili Lágafellskirkju

Í vetur ætlum við að bjóða upp á súpusamverur einu sinni í mánuði. Oftast síðasta þriðjudag í hverjum mánuði kl. 11:30-13.

Við fáum til okkar góða gesti en umsjón stundanna er í höndum sr. Guðlaugar Helgu og sr. Örnu Grétarsdóttur

Eigum saman notalega stund með bænum, spjalli og súpu.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Dagskrá haust 2026

29. september

Sr. Sveinbjörn Einarsson kemur og segir frá klaustrinu á Þingeyri

27. október 

Sr. Vigfús Bjarni les úr nýútkominni bók sinni; Von að láni

24. nóvember

Sr. Hildur Eir les úr nýlegri ljóðabók sinni; Harmurinn í hlátrinum

15. desember

Prestar Lágafellssóknar lesa úr bókinni Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson og boðið verður upp á hangikjöt og meðlæti.