Sumarnámskeið Lágafellskirkju 2024
fyrir 6 – 9 ára krakka
(1. – 4. bekkur, fædd á árinu 2014 – 2018)

Lágafellskirkja býður upp á sumarnámskeið í júní og ágúst. Hver dagur byggist upp af leik í bland við fræðslu, ævintýrum, söng og fjöri. Sérstakur gestur á námskeiðunum verður töframaðurinn Einar Aron sem mætir með töfraskólann sinn og kennir krökkunum töfrabrögð. Töfrandi skemmtilegt! Þátttakendur koma með eigið nesti alla dagana, það verða 3 nestisstundir yfir daginn. Boðið verður upp á pylsu, djús og íspartý í hádeginu á lokadegi námskeiðsins. Námskeiðin verða í gangi milli kl. 9 – 16 en safnaðarheimilið opnar kl. 8:45.

Tímabil í boði:
Vika 1: 10. – 14. júní (Tilboðsverð f. 10. apríl: 12.000 kr. Fullt verð: 15.000 kr.)
Vika 2: 18. – 21. júní – 4 daga námskeið (Tilboðsverð f. 10. apríl: 10.000 kr. Fullt verð: 12.000 kr.)
Vika 3: 24. júní – 28. júní (Tilboðsverð f. 10. apríl: 12.000 kr. Fullt verð: 15.000 kr.)
Vika 4: 12. – 16. ágúst (Tilboðsverð f. 10. apríl: 12.000 kr. Fullt verð: 15.000 kr.)

Veittur er 20% systkinaafsláttur, hafið samband við Boga æskulýðsfulltrúa til þess að virkja og einnig ef einhverjar spurningar vakna.

Nauðsynlegt er að skrá þátttakendur í gegnum skráningarkerfið okkar – SKRÁNING HÉR!!


Dagskrá
Námskeiðin eru haldin að safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3 í Mosfellsbæ og verða í gangi mánudaga til föstudaga milli kl. 9 – 16, húsið opnar kl. 8:45. Hver dagur felur í sér mikið fjör, ævintýri, ferðalög í nærumhverfi eða vettvangsferðir með strætó í fyrirtæki og söfn, föndur og spjall. Töframaðurinn Einar Aron kemur einnig í heimsókn með töfraskólann sinn. Krakkarnir læra töfrabrögð en Einar Aron tengir kennsluna við kristna trú og fræðslusíðuna sína: sunnudagaskolinn.is
Einnig fá krakkarnir blöðrudýr með sér heim!

Fjör/útivera
Ævintýraferðir í náttúru Mosfellsbæjar, lengri ævintýra/vettvangsferðir með strætó, inni & útileikir, SKUTLUKEPPNIN MIKLA, krítar og sápukúlur, hoppukastalar, þemadagar, hæfileikasýning, töfraskóli eru dæmi um dagskráliði sem hægt er að búast við yfir vikurnar.

Morgunstund
Á hverjum degi er sögð biblíusaga með litríkum hætti, unnið með hana ásamt því við syngjum hressa söngva.

Umsjón með námskeiðinu hefur Bogi Benediktsson, æskulýðsfulltrúi. Bogi hefur langa starfsreynslu af barna- og æskulýðsstarfi á vegum KFUM&K, Þjóðkirkjunnar, frístundaheimilum og leikskólum. Með honum verða einnig Andrea Gréta Axelsdóttir þroskaþjálfi og kirkjuvörður ofl. Við munum sjá til þess að námskeiðin verði að skemmtilegri upplifun fyrir krakkana í sumar! Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 566-7113 eða bogi@lagafellskirkja.is

Skráning
Skráning á sumarnámskeiðin er hafin í gegnum skráningarkerfið okkar. SMELLIÐ HÉR!