• “Gríptu daginn” –  Íhugun – kyrrð – útivera. Kyrrðardagar í Mosfellskirkju verða á aðventunni laugardagana 26. og 3. desember 2022
    Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 11:00 í og við Mosfellskirkju
    Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
    Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni.
    Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þær gjarnan upplýsingar  í síma 5667113 á skrifstofu frá 9 -13 eða á netfangi safnaðarins: lagafellskirkja@lagafellskirkja.is. Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.