Í Lágafellssókn er öflugt æskulýðsstarf fyrir unglinga i 8., 9. og 10. bekk veturinn 2023 – 24. Fundirnir eru haldnir á þriðjudögum kl. 20 (húsið opnar kl. 19:30) í safnaðarheimilinu að Þverholti 3, 2. hæð. Á dagskránni verða leikir, flipp og fjör. Einnig er stefnt á að fara á árlegt landsmót ÆSKÞ (Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar) á Egilsstöðum helgina 13. – 15. október 2023!

Umsjón með æskulýðsstarfinu hefur Bogi æskulýðsfulltrúi, Hákon Darri, Sigurður Óli & Petrína.

Allir unglingar velkomnir!