Haustið / veturinn 2022 verður eins og undanfarið boðið uppá andlegt ferðalag í anda Tólf sporanna í Mosfellsbæ. Kynningarfundur verður MIÐVIKUDAGINN 5. október 2022 kl. 19:30 – 21:30 og í framhaldi verða opnir fundir næstu 3 miðvikudaga á eftir. Eftir það er hópunum lokað en það er eðli þess starfs að það er unnið í lokuðum hópum þar sem trúnaður myndast til að takast á við óuppgerðar tilfinningar. Fundirnir eru haldnir í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð á miðvikudögum.

Nánari upplýsingar HÉR.