Hressandi rokktónleikar í Lágafellskirkju með rokkhljómsveitinni Rock Paper Sisters sem hluti af bæjarhátíðinni Í túninu heima. Hljómsveitin skipar snillingana: Jón Björn Ríkharðsson (trommur), Eyþór Ingi (söngur og gítar), Þorsteinn Árnason (bassi og söngur), Davíð Sigurgeirsson (gítar) og Þórður Sigurðarson (píanó) en þessir tónleikar verða jafnframt kveðjutónleikar hans við kirkjuna. Ókeypis aðgangur á meðan húsrúm leyfir.