Sunnudagaskólinn er á sunnudögum kl. 13:00 í Lágafellskirkju. Foreldrar og börn sameinast í söng og gleði í kirkjunni. Fræðslan miðast við þarfir barnanna en allir geta notið með.

Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Bogi Benediktsson æskulýðsfulltrúi, Sigurður Óli og Þórður organisti.