Aðventu ratleikur
Sunnudaginn 13. desember milli kl. 12 – 14
við Lágafellskirkju
Lokastund barnastarfsins í Lágafellskirkju verður að þessu sinni í ratleikjaformi.
Gerum okkur glaða stund með fjölskyldunni milli
kl. 12 – 14 við kirkjuna, höfum gaman og leysum þrautir.
Ratleikurinn verður úti en gætt verður að fjarlægðar- og nálægðartakmörkunum en minnum á einstaklingsbundnar sóttvarnir.
Psss…. Komið endilega vel klædd eftir veðri og í jólastuði!
Leiðbeiningar:
– Þrautirnar eru fyrir unga og aldna til þess að leysa í sameiningu!
– 4 þrautastöðvar um svæðið
– Safna 4 stöfum sem mynda orð
– Taka mynd af orðinu í lokin og sendið á Lágafellskirkju (upplýsingar sjá neðst)
Ef einhverjar spurningar vakna, sendið póst á Boga æskulýðsfulltrúa:
bogi@lagafellskirkja.is eða skilaboð á Lágafellskirkju í gegnum facebook eða instagram.