Guðsþjónusta í Mosfellskirkju sunnudaginn 30. ágúst kl. 11:00. Prestur Ragnheiður Jónsdóttir
Hluti af dagskrá bæjarhátíðarinnar „í Túninu heima!“

Á 50 ára afmælisári kirkjunnar mynnumst við Stefáns Þorlákssonar
sem gaf eigur sínar til endurreisnar Mosfellskirkju.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir, þjónar fyrir altari og prédikar.
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur, organista.

Kirkjukaffi og baðstofustemmning að athöfn lokinni í „stofunni hans Stefáns“ í Reykjadal.
Dalbúar og samtímamenn Stefáns segja sögur af lífi hans.

Hjartanlega velkomin!