“Gríptu daginn” –  Íhugun – kyrrð – útivera.

Kyrrðardagar í Mosfellskirkju verða laugardagana 27. maí og 24. júní 2017
Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 12:00 í og við Mosfellskirkju
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þær gjarnan upplýsingar. Sr. Arndís Linn sér um kyrrðardaginn 27. maí og er hægt að skrá sig á þann dag hjá henni í síma 8668947. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir sér um síðari daginn þann 24. júní  og tekur á móti skráningu í sími 8699882

Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn

26. maí 2017 12:45

Deildu með vinum þínum