Ferð í Vatnaskóg
Í ár verður farið í fermingarferðalag í Vatnaskóg líkt og síðustu ár. Í ár verður farið í dagsferð í Vatnaskóg, lagt af stað snemma morguns og farið heim að kvöldi. Í Vatnaskógi er einstaklega góð aðstaða fyrir börnin og hafa ferðirnar verið ákaflega velheppnaðar. K
Fermingarferðin haustönn 2025 verður sem hér segir:
-Nánari upplýsingar um fermingarferðirnar
Kostnaður / greiðsla:
Ferðin er niðurgreidd af sóknarnefnd Lágafellssóknar og héraðssjóði Kjalarnesprófastsdæmis. Greiða þarf sérstaklega fyrir ferðalagið.
Þegar nær dregur verður foreldrum-og forráðamönnum fermingarbarna send slóð til þess að skrá í ferðalagið. Í gegnum það kerfi er hægt greitt fyrir ferðina og þar með telst barnið skráð í ferðalagið.
Upplýsingar og samskipti:
Foreldrar/forráðamenn eru beðnir að geta þess bréflega ef gæta þarf sérstaklega að líðan og heilsufari fermingarbarns, fæðuóþol lyf og þess háttar. Allir eiga að fá að njóta dvalarinnar. Við kappkostum því að vera góðir félagar og sýnum tillitsemi í samskiptum. Þeir sem vísvitandi reyna að eyðileggja dvölina fyrir öðrum eru sendir heim á eigin kostnað.
Þátttaka:
Þess er vænst að allir þátttakendur taki þátt í öllum dagskrárliðum nema annað sé sérstaklega tekið fram. Umgengni sýnir innri mann.
Við göngum vel um húsnæði og eigur Vatnaskógar. Ef einhver verður vísvitandi valdur að tjóni bætir viðkomandi fyrir það. Óheimilt er að fara inn og út um glugga.
Bátar:
Bátar eru lánaðir ef veður leyfir. Um bátana og vatnið gilda reglur sem þátttakendum ber að kynna sér og virða.
Vatnið. Ef vatnið er ísilagt getur ísinn verið varasamur. Farið aldrei út á ísinn nema með sérstöku leyfi starfsmanna.
Sú breyting var gerð frá og með hausti 2022 að börn sem ekki eru skráð í fermingarfræðslu geta ekki tekið þátt í ferðinni í Vatnaskóg.