
Kirkjulistaviku lauk sunnudaginn 15. febrúar með barnakóratónleikum í Hafnarfjarðarkirkju. Barna- og unglingakórar úr 5 kirkjum í Kjalarnesprófastsdæmi höfðu æft fjölbreytta efnisskrá frá áramótum og komu saman á sunnudeginum til að æfa sameiginlega. Kóramótinu lauk síðar þann sama dag með tónleikum í kirkjunni.
Um 100 börn tóku þátt í tónleikunum ásamt hljómsveit, kórstjórum og tónlistarkonunni Hafdísi Huld. Yfirskrift tónleikanna var „Í skugga vængja þinna“. Tónleikarnir tókust afar vel og voru fjölsóttir.
Barnakór Lágafellskirkju
Við í Lágafellskirkju áttum að sjálfsögðu okkar fulltrúa á kóramótinu en eldri hópur í Barnakór Lágafellssóknar tók þátt og stóðu sig með miklum sóma undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur.
Katrín Valdís Hjartardóttir
26. febrúar 2026 16:12

