
Hreinsun á beðum eftir jólahátíðina
Við hjá Kirkjugörðum Lágafellssóknar leggjum mikið upp úr því að gera eins vel og hægt er við að hafa þá snyrtilega og vel hirta. Nú þegar jólahátíðinni er lokið biðlum við til aðstandenda leiða í Lágafells, eldri- og nýja Mosfellskirkjugörðum að hreinsa til jólaskreytingar eins og útikerti og þess háttar á leiðum ástvina sinna. Þegar vindur blæs vill þetta fara á flakk um garðana.
Einnig bendum við á að við kirkjugarðana okkar eru flokkunartunnur fyrir: lífrænan garðaúrgang (brún), blandað/almennt (grá), pappír/pappa (blá) og plast (græn).
Aðstandendur bera svo sjálfir ábyrð á því að taka með sér heim eða fara með í sorpu annan úrgang t.d. gler, málm, kerti ofl.
Bestu þakkir fyrir samstarfið við garðana okkar.
Kirkjugarðar Lágafellssóknar
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
13. janúar 2026 15:35

