Sóknarnefnd Lágafellssóknar

Sóknarnefndarfundur: 8. október 2025 kl. 17.00.

Fundargerð

Mættir voru Sr. Arndís Bernharðsdóttir Linn sóknarprestur og prestarnir Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttur  og Sr. Arndís Grétarsdóttir auk framkvæmdastjóra  Jóhönnu Ýr Jóhannsdóttur.  Eftirtaldir aðalmenn mættu:  Elísabet Sigurveig Ólafsdóttir sóknarnefndarformaður,  Haraldur Sigurðsson, Sigurður Óli Karlsson og Halla Karen Kristjánsdóttir.

Varamenn voru mættir: Björn Ó Björgvinsson, Kristín Valdemarsdóttir og Jónína Sif Eyþórsdóttir.
Fjarverandi og forföll: Valgerður Magnúsdóttir, Örn Jónasson og Guðmundur Jónsson.

  1. Formaður sóknarnefndar setti fundinn og bauð fundarfólk velkomið.

 

  1. Safnaðarprestur  leiddi fundinn með hugvekju og bæn og að því loknu gerði sóknarprestur  grein fyrir helgihaldinu og starfi sóknarinnar á komandi vetri.  Fram kom hjá sóknarpresti að nú eru 139 börn í fermingarfræðslu hjá prestunum.  Farið verður tvær ferðir  í Vatnaskóg með fermingarbörnin.  Helgihald gengur vel og algengt er að um 100 manns mæti til messu.

 

  1. Fundargerð síðasta fundar (10.09.2025) tekin fyrir.
    Niðurstaða: Samþykkt samhljóða.

 

 

  1. Framkvæmdir – staða mála
    Framkvæmdastjóri sóknarinnar fór yfir stöðu mála varðandi lagfæringar á Mosfellskirkju. Nokkrar umræður voru um framkvæmdir við lagfæringar á kirkjunni.  Fram kom hjá gjaldkera sóknarinnar að endurnýjun á þaki verði frestað til næsta vors.  Þá kom fram hjá framkvæmdastjóra að brotist hefði verið inn í áhaldahús á Mosfelli og stolið þaðan kerru sem kirkjugarðurinn á og verkfærum frá verktökum sem vinna nú við lagfæringar á Mosfellskirkju.  Búið er að setja upp öryggiskerfi í áhaldahúsinu og tryggja það bæði með húseigenda- og innbrotstryggingu.  Búið er að semja við BG þrif ehf. um þrif á Mosfellskirkju að viðgerð lokinni.  Þá kom fram hjá framkvæmdastjóra  að bókhald sóknarinnar er nú komið í rafrænt bókhald hjá Gæðaendurskoðun slf. og þar fer einnig fram launavinnsla sóknarinnar.  Reiknað er með að 6 mánaða uppgjör fyrir árið 2025 liggi fyrir á næsta sóknarnefndarfundi.  Þá er gert ráð fyrir að unnið verði að fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 í febrúar á næsta ári.

 

 

 

 

 

  1. Önnur mál varðandi rekstur.

Framkvæmdastjóri kom inn á heitavatnsnotkun í kirkjum og safnaðarheimili.  Taldi hún nauðsynlegt að kanna hvort eitthvað væri hægt að gera til að lækka þann kostnað.  Einnig þarf að kanna hvort húsfélagið Þverholti 3 sjái um eða ætti að sjá um tryggingar s.s. húseigendatryggingu.  Þá kom fram að safnaðarprestur fær skrifstofuaðstöðu á 3ju hæð.

 

  1. Sameining prestakalla.

Nokkuð var rætt um sameiningu Reynivalla- og Mosfellsprestakalla.  Sóknarprestur sagði að sameining gengi vel, og lagt væri til að eftir sameiningu héti prestakallið Esjuprestakall.  Í framhaldi af sameiningu yrðu bæði Mosfellsprestakall og Reynivallaprestakall lögð niður.  Rætt var um skiptingu sameiginlegs kostnaðar sókna innan hins nýja prestakall og skiptingu þess milli sókna/prestakalla.  Var það einróma skoðun fundarmanna, að það þyrfti að ákveða um leið og þessi sameining kæmi til framkvæmda.

 

  1. Starfmannamál sóknarinnar
    Lagt var til að samþykktir yrðu tveir ráðningarsamningar, vegna aðstoðarkirkjuvarðar og verkefnastjóra safnaðarstarfs. Samningarnir voru samþykktir samhljóða. Umræður um ráðningasamninga.
  2. Næsti fundur er ráðgerður 5. nóvember 2025.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 18.40

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

22. desember 2025 16:34

Deildu með vinum þínum