
Lágafellskirkja býður upp á sumarnámskeið í júní og ágúst.
Hver dagur byggist upp af leik í bland við fræðslu, ævintýrum, söng og fjöri. Þátttakendur koma með eigið nesti alla dagana, það verða 3 nestisstundir yfir daginn. Boðið verður upp á pylsu, djús og íspartý í hádeginu á lokadegi námskeiðsins.
Námskeiðin verða í gangi milli kl. 9 – 16 en safnaðarheimilið opnar kl. 8:45
Tímabil í boði:
Vika 1: 10. – 13. júní. 4 daga námskeið verð: 15.000 kr.
Vika 2: 16. – 20. júní. 4 daga námskeið verð: 15.000 kr.
Vika 3: 23. júní – 27. júní. 5 daga námskeið verð: 18.000 kr.
Vika 4: 18. – 22. ágúst. 5 daga námskeið verð: 18.000 kr.
Veittur er 20% systkinaafsláttur, hafið samband við Thelmu Rós æskulýðsfulltrúa til þess að virkja og einnig ef einhverjar spurningar vakna.
Thelma Rós Arnardóttir
28. maí 2025 19:26