Sóknarnefndarfundur Lágafellssóknar 8. mai kl. 19:00

 

Mætt: Haraldur Sigurðsson, Rafn Jónsson, Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir, Örn Gunnarsson, Jónína Sif Eyþórsdóttir, Brynhildur Sveinsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Örn Jónasson, Guðmundur Jónsson, Elísabet S. Ólafsdóttir.

 

  1. Formaður setur fund
  2. Fundargerð frá 8. apríl 2025 – samþykkt samhljóða með athugasemd frá Haraldi sem hafði boðað forföll.
  3. Yfirferð safnaðarstarfs – Sr. Guðlaug Helga fór yfir helgihald í mánuðum en ræddi einnig hvaða störf eru unnin í maí þ.e.a.s rýnt til gagns varðandi helgihald og annað starf á vegum sóknarinnar. Guðlaug Helga sagði frá öflugum barnakór sem söng nýverið í Kjarna. Valgerði Jónsdóttur, barnakórstjóra hrósað fyrir afar gott starf. Góðar umræður um mikilvægi barnakóranna. Guðlaug Helga minntist einnig á að uppbygging safnaðarstarfs tekur tíma. Umræður einnig um sumarnámskeið.
  4. Undirbúningur aðalsafnaðarfundar – Rafn Jónsson, formaður fór stuttlega yfir ársskýrslu sóknarnefndar sem hafði verðið send í tölvupósti til sóknarnefndar til yfirlestrar. Einnig fór formaður yfir tillögu sóknarnefndar að nýrri aðal og varanefnd.
  5. Önnur mál
    1. Kostnaður vegna framkvæmda vegna Mosfellskirkju, framkvæmdastjóri fór yfir tölur. Samtals kostnaður vegna endurbóta um 42 milljónir.
    2. Kostnaðaráætlun Mosfellsskirkju – framkvæmdastjóri fór yfir áætlun.
    3. Rafrænt bókhald – framkvæmdastjóri kynnti stöðu mála.
    4. Umsjónarmaður kirkjugarða sagði frá góðum og upplýsandi aðalfundi Kirkjugarðasambands Íslands sem var haldinn á Hótel Örk í Hveragerði.
    5. Héraðsnefndarfundur Kjalarnesprófastsdæmis. Haraldur Sigurðarson, gjaldkeri sóknarnefndar sagði frá helstu atriðum fundarins. Hæst bar fyrirhuguð sameining prestakalla. Vitnað í bréf frá biskupi. (Sjá skjámynd)
    6. Örn Gunnarsson, bað um orðið og vildi enda á jákvæðum nótunum og sagði hversu jákvætt og mikilvægt það var fyrir sóknina að ráða Guðlaugu Helgu Guðlaugsdóttur sem safnaðarráðinn prest.

Fundi slitið kl. 19:45.

Fundargerð ritaði Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir.

 

 

 

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

27. maí 2025 13:07

Deildu með vinum þínum