
Aðalsafnaðarfundur Lágafellssóknar fór fram í safnaðarheimili Lágafellssóknar í kvöld. Á dagskránni voru hefðbundin aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar sem og ársreikningar. Þá fóru fram kosningar til sóknarnefndar en þau Rafn Jónsson, Ólína Kristín Margeirsdóttir, María Marta Sigurðardóttir og Pétur Magnússon gáfu ekki kost á sér áfram. Er þeim þakkað óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf í þágu sóknarinnar.
Nýja sóknarnefnd skipa
aðalmenn:
Guðmundur Jónsson
Halla Karen Krisjánsdóttir
Elísabet Sigurveig Ólafsdóttir
Sigurður Óli Karlsson
Haraldur Sigurðsson
Valgerður Magnúsdóttir
Örn Jónasson
varamenn:
Björn Ó Björgvinsson
Brynhildur Sveinsdóttir
Kristín Edda Guðmundsdóttir
Jónína Sif Eyþórsdóttir
Inga Kristín Kjartansdóttir
Kristín Valdimarsdóttir
Örn Gunnarsson
Nýrri sóknarnefnd er óskað til hamingju með kjörið og er henni óskað velfarnaðar í störfum sínum í þágu sóknarinnar.
Nýkjörin sóknarnefnd Lágafellssóknar: Frá hægri, Haraldur Sigurðsson, aðalm., Guðmundur Jónsson, aðalm., Halla Karen Kristjánsdóttir, aðalm., Brynhildur Sveinsdóttir, varam., Valgerður Magnúsdóttir, aðalm., Elísabet S. Ólafsdóttir, aðalm., og Björn Ó. Björgvinsson, varam. Á myndina vantar í aðalnefnd: Sigurð Óla Karlsson og Örn Jónasson. Í varanefnd: Kristín Edda Guðmundsdóttir, Jónína Sif Eyþórsdóttir, Inga Kristín Kjartansdóttir, Kristín Valdimarsdóttir, Örn Gunnarsson. Aðalstjórn skiptir með sér verkum á sínum fyrsta fundi.
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
8. maí 2025 23:39