Sumarið 2024 verður í boði 4 vikur af sumarnámskeiði fyrir 6 – 9 ára krakka (1. – 4. bekkur, fædd 2014-2018) eins og síðustu ár. Við í Lágafellssókn auglýsum því eftir sumarstarfsfólki, tímabundna stöðu:

Sumarstarfsmaður D
Ráðið er í 4 vikur yfir sumartímann á námskeiðin. Hægt er að semja um að vinna bæði heilan og hálfan vinnudag yfir þessar 4 vikur.

  • Starfsmaður á sumarnámskeiði (4 vikur, sjá vinnutíma og nánari upplýsingar neðar)

Námskeiðin verða starfrækt að safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 270 Mosfellsbæ.
Vinnutími starfsfólks verður á bilinu kl. 8:30 – 16:30 með sveigjanleika eftir vinnuskipulagi.

Vika 1: 10. – 14. júní
Vika 2: 18. – 21. júní (4 daga námskeið)
Vika 3: 24. – 28. júní
Vika 4: 12. – 16. ágúst

Hver vika inniheldur gleði, ferðalög frá starfsstöð í nærumhverfi eða með strætó, söngur, ævintýri og leikir! Umsjón með námskeiðunum hefur Bogi Benediktsson æskulýðsfulltrúi og Andrea Gréta Axelsdóttir kirkjuvörður.

Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára að aldri. Æskilegast er ef umsækjandi hafi starfsreynslu eða áhuga á að vinna með börnum- og unglingum og starfi sem fer fram í kirkjum. Við leitum að góðum einstaklingum sem er jákvæð, þjónustulipur og góð í mannlegum samskiptum. Við ráðningu er gerð krafa um að umsækjendur mæti á skyndihjálparnámskeið sem verður skipulagt fyrir starfsfólk þegar nær dregur sumri. Námskeiðið verði haldið að kvöldi eða part af degi. Umsóknarfrestur er til 10. maí og með umsókn skal fylgja ferilskrá, umsóknarbréf og samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá (sjá eyðublað neðar). Gerð er krafa um skimum á sakavottorði við ráðningu eða framvísun á sakavottorði við umsókn sbr 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007 – eyðublað er hægt að nálgast hér til að fylla út. Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Bogi æskulýðsfulltrúi: bogi@lagafellskirkja.is s: 6906766, sr. Arndís Linn sóknarprestur s: 8668947, Ólína Margeirsdóttir formaður sóknarnefndar Lágafellssóknar s: 8981795.

Umsóknir sendast á: lagafellskirkja@lagafellskirkja.is

Bogi Benediktsson

11. apríl 2024 09:00

Deildu með vinum þínum