
Foreldramorgnar hefjast á ný haustið 2023 á breyttum vikudegi. Þeir verða alla fimmtudaga kl. 10 – 12 í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, 3. hæð.
Dagskrá: Opið hús.
Á foreldramorgnum gefst foreldrum og börnum þeirra tækifæri til að hittast í notalegu umhverfi, ræða saman, skiptast á skoðunum, fræðast og eignast vini. Þetta eru stundir sem stuðla kannski að því að rjúfa félagslega einangrun og mynda tengsl meðal jafningja. Í Safnaðarheimilinu eru leikföng, bækur, litir og fleira fyrir börnin, og á hverjum morgni er boðið uppá kaffi og meðlæti.
Umsjón: Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir og Andrea Gréta Axelsdóttir.
Bogi Benediktsson
12. september 2023 15:36