Kl. 13: Fjölskylduguðsþjónusta í Lágafellskirkju – upphaf barnastarfsins. Skemmtileg stund í kirkjunni okkar fyrir alla fjölskylduna!
Kríli, krakkar (stór og smá), mömmur & pabbar, ömmur & afar, frændur & frænkur.
Umsjón: Sr. Henning Emil, Guðlaug Helga, Valgerður & barnakórinn.
Við kynnnum einnig splunkunýja tónlistarstjórann okkar, Árni Heiðar Karlsson til leiks!
Í lokin verður hressing í skrúðhúsi og krakkarnir fá fjársjóðskistu með sér heim í gjöf frá kirkjunni.

Sunnudagaskólinn verður svo á sínum stað, á sama tíma í allann vetur.

Verið hjartanlega velkomin til kirkju!

Bogi Benediktsson

6. september 2023 10:36

Deildu með vinum þínum