Veturinn 2023 – 2024 verður ýmislegt í boði fyrir unga og aldna í safnaðarstarfinu.

Guðsþjónustur/Kvöldmessur
Kvöldmessur hafa gefist vel og verið vinsælar í sumar og síðasta vetur. Þess vegna verður annan hvern sunnudag kvöldmessa kl. 20 í Lágafellskirkju (1. og 3. sunnudag í hverjum mánuði. Hina sunnudagana verða guðsþjónustur kl. 11 en síðasta sunnudag í hverjum mánuði eru þær í Mosfellskirkju.

Sunnudagaskóli
Hefst með fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 10. september og verður ávallt á sunnudögum kl. 13 í Lágafellskirkju.

Barnakór Lágafellssóknar
Æfingar hefjast mánudaginn 4. september 2023 og verða í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3.
Það er velkomið fyrir krakkana að prufa að mæta í 1-2 skipti áður en skráð er. Nánar HÉR!
4. – 7. bekkur: Kóræfingar á mánudögum kl. 15:15 – 16:00
1. – 3. bekkur: Kóræfingar á mánudögum kl. 16:15 – 17:00

Æskulýðsstarfið ósoM (8. – 10. bekk)
Hefst þriðjudaginn 5. september kl. 20 – 21:30 (húsið opnar kl. 19:30) í safnaðarheimilinu. Á dagskránni eru leikir, flipp og fjör. Nánar HÉR.

Foreldramorgnar
Verða á fimmtudögum í vetur og hefjast 14. september kl. 10 – 12 í safnaðarheimilinu. Nánar HÉR!

Kyrrðarbænastundir
Frá 5. september 2023 eru vikulegar íhugunar/kyrrðarbænar samverur í Lágafellskirkju, á þriðjudögum kl. 17:30 – 18:30. Byrjendur mæti kl. 17:15. Umsjón hefur Arna Harðardóttir. Nánar HÉR.

Gaman saman – samverur eldri borgara
Samverunar hefjast fimmtudaginn 14. september kl. 14 – 16 í safnaðarheimilinu og eru annan hvern fimmtudag hjá okkur og hitt skiptið á Eirhömrum. Nánar HÉR.

Prjónasamverur
Hefjast fimmtudaginn 14. september kl. 19:30 – 21:30 í safnaðarheimilinu og verða annað hvert fimmtudagskvöld. Nánar HÉR.

Fermingarfræðsla
Fermingarfræðslan hefst 19. og 20. september á haustönn og á vorönn hefst fræðslan 9. og 10. janúar. Rafræn skráning til þess að skrá í fermingarfræðslutíma hefst föstudaginn 1. september kl. 20 á bakvið þessa SMELLU.

Kirkjukórinn
Æfir á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 í safnaðarheimilinu, 3. hæð. Nýjir félagar eru velkomnir en hafið samband við Árna Heiðar Karlsson organista og tónlistarstjóra ef spurningar vakna.

Bogi Benediktsson

31. ágúst 2023 12:14

Deildu með vinum þínum