Heilunarguðsþjónusta undir yfirskriftinni ,,Leyfðu höndum Guðs að snerta við þér“ verður í Lágafellskirkju, fimmtudaginn 18. maí kl. 20:00. Sr. Henning Emil Magnússon þjónar fyrir altari og Vigdís Steinþórsdóttir og hópur heilara aðstoðar við athöfnina. Tónlist: Svava Kristín Ingólfsdóttir söngkona og organisti sjá um tónlistina. Græðarar verða staðsettir á nokkrum stöðum fyrir altari og munu heila kirkjugesti þaðan. Á meðan á heiluninni stendur verður tónlist og söngur.
Öll eru hjartanlega velkomin