SKRÁNINGIN ER HAFIN - SMELLIÐ HÉR

Sumarið 2022

Sumarnámskeið Lágafellskirkju 2022
fyrir 6 – 9 ára krakka (1. – 4. bekkur, fædd á árinu 2013 – 2016)

Lágafellskirkja býður upp á sumarnámskeið í júní og ágúst. Hver dagur byggist upp af leik í bland við fræðslu, ævintýrum, söng og fjöri. Þátttakendur koma með eigið nesti alla dagana, það verða 3 nestisstundir yfir daginn. Boðið verður upp á pylsu, djús og íspartý í hádeginu á lokadegi námskeiðsins. Námskeiðin verða í gangi milli kl. 9 – 16 en safnaðarheimilið opnar kl. 8:45.

Tímabil í boði:
Vika 1: 13. – 16. júní (8.000 kr.) – 4 daga námskeið
Vika 2: 20. – 24. júní (10.000 kr.)
Vika 3: 27. júní – 1. júlí (10.000 kr.) – FULLT en hægt að skrá á biðlista
Vika 4: 15. – 19. ágúst (10.000 kr.)

Veittur er 20% systkinaafsláttur, hafið samband við Boga æskulýðsfulltrúa til þess að virkja og einnig ef einhverjar spurningar vakna.

Nauðsynlegt er að skrá þátttakendur í gegnum skráningarkerfið okkar – SKRÁNING HAFIN!


Dagskrá
Námskeiðin eru haldin að safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3 í Mosfellsbæ og verða í gangi mánudaga til föstudaga milli kl. 9 – 16, húsið opnar kl. 8:45. Hver dagur felur í sér mikið fjör, ævintýri, ferðalög í nærumhverfi eða vettvangsferðir með strætó í fyrirtæki og söfn, föndur og spjall. Við fáum einnig heimsókn frá orgelsmiðju þar sem krakkarnir fá að setja saman orgel (lego/IKEA farandsorgel á hjólum) og leika á!

Fjör/útivera
Ævintýraferðir í náttúru Mosfellsbæjar, lengri ævintýra/vettvangsferðir með strætó, inni & útileikir, krítar og sápukúlur, hoppukastalar, þemadagar, hæfileikasýning, orgelsmiðja eru dæmi um dagskráliði sem hægt er að búast við yfir vikurnar.

Morgunstund
Á hverjum degi er sögð biblíusaga með litríkum hætti, unnið með hana ásamt því við syngjum hressa söngva.

Umsjón með námskeiðinu hefur Bogi Benediktsson, æskulýðsfulltrúi. Bogi hefur langa starfsreynslu af barna- og æskulýðsstarfi á vegum KFUM&K, Þjóðkirkjunnar, frístundaheimilum og leikskólum. Með honum verða einnig Bryndís Böðvarsdóttir og Þórður Sigurðarsson, sem hafa bæði mikla reynslu af barnastarfi og fleiri. Allt þetta verður sannarlega nýtt til þess að gera námskeiðin að skemmtilegri upplifun fyrir krakkana í sumar! Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 566-7113 eða bogi@lagafellskirkja.is

Skráning
Skráning á sumarnámskeiðin er hafin í skráningarkerfinu okkar. SMELLIÐ HÉR!