
Eins og síðastliðin ár verða Kyrrðarstundir á aðventu í Mosfellskirkju. Á stundunum er lögð áhersla á Íhugun – kyrrð – og útiveru – Í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal. Kyrrðarstundinar verða Laugardagana 8. og 15. desember kl. 9-11
Við hefjum stundina í morgunrökkrinu með kristinni íhugun. Göngum síðan út í birtu dagsins og tökum stuttan göngutúr í dalnum. Heitt kakó í lok samveru.
Umsjón hafa prestar safnaðarins Ragnheiður og Arndís. Allir velkomnir. Skráning er á netfangið lagafellskirkja@lagafellskirkja.is eða í síma safnaðarheimilisins 5667113.
Upplýsingar um Kyrrðardagana má líka sjá hér á síðunni undir Kyrrðardagar
Lögð verður áhersla á kyrrðarbænina (Centering Prayer). Nánari upplýsingar um bænina er að finna á heimasíðunni www.kristinihugun.is
Arndís G. Bernhardsdóttir Linn
11. desember 2018 11:27