Úlfastund hefst fimmtudaginn 15. janúar kl. 17:00-19:00.

Á fimmtudögum frá 15. janúar – 19.mars 2026 verður Úlfastund í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, 3. hæð.

Úlfastundir eru ætlaðar fyrir fjölskylduna til að koma saman og eiga góða stund. Við endum svo á að borða saman grjónagraut, brauð og álegg. Stundirnar eru ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig til að hægt sé að áætla matinn.

Umsjón með stundinni hafa Katrín Valdís Hjartardóttir, verkefnastjóri safnaðarstarfs Lágafellssóknar og Andrea Gréta Axelsdóttir, kirkjuvörður.

Skráning í grjónagraut

Verið hjartanlega velkomin!