Hefur þú athugað í hvaða trúfélag þú ert skráð(ur)? Það gæti komið þér á óvart!

Sóknargjöld eru mikilvægur þáttur í að halda úti öflugu kirkjustarfi. Þau styðja meðal annars við barna- og æskulýðsstarf, tónlist, helgihald, fjölskyldustarf og fjölbreyttar samverustundir fyrir fólk á öllum aldri.

Með því að skrá þig í þjóðkirkjuna styður þú við starf kirkjunnar í þínu nærsamfélagi.  Sóknargjöldin renna til þeirrar sóknar sem þú tilheyrir og hjálpa til við að skapa lifandi og fjölbreytt kirkjustarf.

En vissir þú að þótt þú sért ekki skráð(ur) í trúfélag greiðir þú samt sömu skatta? Sóknargjöld eru ekki sérstakur skattur sem fellur niður ef þú stendur utan trúfélaga. Þess í stað verður samsvarandi fjárhæð eftir í ríkissjóði, en rennur ekki til safnaðarstarfs.

Nú er góður tími til að athuga skráninguna þína!

Skráning í trú- og lífsskoðunarfélag miðast við 1. desember þegar sóknargjöld næsta árs eru ákvörðuð.

Athugaðu skráninguna þína á Ísland.is og skráðu þig í þjóðkirkjuna ef þú vilt styðja við starfið.

Þín skráning skiptir máli – fyrir kirkjuna og samfélagið okkar.

Katrín Valdís Hjartardóttir

20. nóvember 2026 11:19

Deildu með vinum þínum