
Um helgina verður haldinn kyrrðardagur í Lágafellskirkju, þar sem áhersla er lögð á kristna íhugun og útiveru. Tilvalið tækifæri til að taka sér hlé frá daglegri önn. Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af sér eftir veturinn.
Kyrrðarstarf í Lágafellskirkju
Hefð er komin á kyrrðarstarf í Mosfellsbæ og auk kyrrðarbænastunda sem eru á hverjum miðvikudegi kl. 17:30 þá eru kyrrðardagur að vori, hausti og á aðventu. Kyrrðardagurinn er laugardaginn 16. maí kl. 9-12. Öll velkomin og ekki þörf á að skrá sig.
Katrín Valdís Hjartardóttir
14. maí 2026 10:51

