Barnakór Lágafellssóknar heldur vortónleika sína sunnudaginn 17. maí kl.14 í Lágafellskirkju.
Kórinn hefur verið starfræktur í fjögur ár og er í miklum blóma. Í honum eru börn í 1. -6. bekk og stjórnendur eru Valgerður Jónsdóttir og Sylvía Þórðardóttir. Á tónleikunum verða flutt fjölbreytt lög og sálmar og höfum við fengið til liðs við okkur hljóðfæraleikarana Bjarma Hreinsson á píanó, Hjálmar Carl Guðnason á kontrabassa og Sigurð Inga Einarsson á slagverk, en einnig leika nokkrir kórfélagar með á hljóðfæri.
Aðgangur er ókeypis en kórinn hlaut nýlega styrki frá héraðssjóði Kjalarnesprófastsdæmis og Lionsklúbbi Mosfellsbæjar.

Katrín Valdís Hjartardóttir

12. maí 2026 16:30

Deildu með vinum þínum