
Nú fer að líða að fyrstu fermingarhelginni í Lágafellskirkju, því fylgir heilmikið umstang m.a. að æfa fyrir athöfnina og máta fermingarkirtla.
Gjöf til Lágafellssóknar
Á dögunum barst Lágafellssókn rausnarleg gjöf frá velunnurum sóknarinnar sem gáfu andvirði 11 nýrra fermingarkirtla. Áhersla við endurnýjun kirtlanna að þessu sinni er að kaupa stærri kirtla því svo virðist vera sem fermingarbörnin í dag séu stærri en þau voru áður og því vantaði orðið upp á stærðir svo allir fengju kirtil sem passaði þeim.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Andreu okkar kirkjuvörð vinna hörðum höndum að því að gera kirtlana tilbúna fyrir helgina.
Katrín Valdís Hjartardóttir
24. mars 2026 14:44

