Í nýlega sameinuðu Esjuprestakalli var mikið um dýrðir á konudaginn, 22. febrúar sl.

Konur þjónuðu, áttu orðið í söng, bæn og ræðum og karlar léku á orgel og píanó.

Reynivallakirkja

Í Reynivallkirkju var væntanlegt fermingarbarn skírt, ræðumaður var Helga Hermannsdóttir kvenfélagskona og boðið var upp á vöfflukaffi eftir messu.

Lágafellskirkja

Í Lágafellskirkju flutti Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Reykjalundar hugvekju og kvennakórinn stöllurnar söng.

Við þökkum innilega öllum þeim sem komu að því að gera þessar stundir ljúfar og ánægjulegar með okkur.

Katrín Valdís Hjartardóttir

24. febrúar 2026 13:33

Deildu með vinum þínum