
Nú eru kyrrðarbænastundirnar hafnar að nýju hjá okkur í Lágafellskirkju. Stundirnar fara fram á miðvikudögum kl. 17:30-18:15.
Við byrjum stundina á iðkun kyrrðarbænar þar sem við sitjum í þögninni í 20 mínútur. Eftir það iðkum við biblíulega íhugun (lectio divina) þar sem sami texti er lesinn í fjögur skipti.
Umsjón með stundunum
Sr. Henning Emil Magnússon, Arna Harðardóttir og Erla Björg Káradóttir leiða kyrrðarbænarstundirnar og öll eru velkomin!
Katrín Valdís Hjartardóttir
19. febrúar 2026 13:07

