
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hjálparsjóð Lágafellssóknar fyrir jólin 2025. Jólaaðstoðin felst í inneignarkorti í matvöruverslanir.
Ýmis frjáls félagsamtök og einstaklingar í Mosfellsbæ gefa rausnarlega í sjóðinn á ári hverju og eru stykrir veittir til þeirra fjölskyldna og einstaklinga sem búsett eru í Mosfellsbæ og þurfa aðstoð fyrir jólin. Tekið er á móti umsóknum í gegnum netfangið lagafellskirkja@lagafellskirkja.is til og með 9. desember 2025. Styrkir verða afhentir 9. og 11. desember.
Upplýsingar sem þurfa að fylgja með umsókninni eru: Nafn, kennitala og heimilisfang. Fjölda heimilisfólks og aldur, atvinnu/atvinnuleysi/örorku og stuttan rökstuðning fyrir umsókninni.
Nánari upplýsingar veita:
Sr. Arndís: arndis@lagafellskirkja.is
Sr. Guðlaug Helga: gudlaughelga@lagafellskirkja.is
Arndís G. Bernhardsdóttir Linn
20. nóvember 2025 15:38

