Sóknarnefndarfundar Lágafellssóknar 8. apríl 2025 kl. 17:00.
Mætt: Rafn Jónsson, Brynhildur Sveinsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Ólína Margeirsdóttir, Pétur Magnússon, Sigurður Óli Karlsson, Guðmundur Jónsson, Elísabet S. Ólafsdóttir, Örn Jónasson, Ólína Kristín Margeirsdóttir, sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn og Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir. Björn Björgvinsson sat fundinn tímabundið við liði 1- 5. Haraldur Sigurðsson boðaði forföll.
- Formaður setti fund og bauð Björn Björgvinsson endurskoðanda hjartanlega velkominn á fundinn.
- Prestur leiddi fundinn úr hlaði með ritningarlestri og bæn.
- Skýrsla um safnaðarstarf síðasta mánaðar og verkefni á næstunni. Sóknarprestur fór yfir safnaðarstarfið síðasta mánuðinn. Hæst ber að nefna fermingarmessur sem gengið hafa vel og mikil ánægja með skipulagið og tónlistina. Einnig ræddi sóknarprestur vinsældir ferminga á laugardögum. Þá hafa fermingar fyrir næsta vor einnig verið auglýstar. Nýr bæklingur vegna fermingafræðslu og ferminga vorið 2026 hefur verið borinn út. Skráningar fara mjög vel af stað.
- Fundargerð síðasta fundar borin upp og samþykkt samhljóða.
- Ársreikningar lagðir fram til kynningar – Björn Björgvinsson fór yfir drög að ársreikningum Lágafellssóknar og Kirkjugarða Lágafellssóknar.
- Yfirlit framkvæmda við Mosfellskirkju og Lágafellskirkju. Stefnt er að fyrstu steypu á golfplötu í Mosfellskirkju fyrir páskana. Handrið ekki komið upp við Lágafellskirkju en það stendur til við fyrsta tækifæri.
- Sameining prestakalla – niðurstaða fundar – formaður og sóknarprestur fóru yfir niðurstöðu fundar en málið verður tekið fyrir á haustfundi kirkjuþings.
- Bílastæði við safnaðarheimili og skrifstofur – til upplýsinga. Framkvæmdastjóri fór yfir heimsókn nágranna sem eiga bílastæðin í kring. Þau eru fá bílastæðin sem tilheyra safnaðarheimilinu og mikilvægt að vera í góðu samstarfi við nágranna um bílastæði.
- Gjaldskrá – tónleikahald – framkvæmdastjóri lagði fram tillögu að hækkunum og var hún samþykkt samhljóða. Gjaldskrá
- Undirbúningur aðalfundar. Formaður fór yfir að nokkrir séu að ganga úr stjórn og mikilvægt að fá nýtt fólk inn í nefndina.
- Starfsmannamál – fært í trúnaðarbók.
- Önnur mál
Fundi slitið kl. 19:15.
Fundargerð ritaði: Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri Lágafellssóknar
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
27. maí 2025 13:05