“Gríptu daginn” –  Íhugun – kyrrð – útivera.

Kyrrðardagar í Lágafellskirkju verða á aðventunni laugardagana 2. desember og 9. desember 2023

Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 11:00 í og við Lágafellskirkju
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í og við kirkjuna og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þeir gjarnan upplýsingar  í síma 5667113 á skrifstofu frá kl. 9 -13. Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.

Bogi Benediktsson

8. desember 2023 09:00

Deildu með vinum þínum