
Í Gaman saman fimmtudaginn 5. október kl. 14 kemur Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur í heimsókn og heldur fyrirlestur.
Efni fyrirlestrarins verður sem hér segir:
ELDSUMBROT Á LANDINU
Eldgos nýliðin á Reykjanesskaga,
nýtt umbrotatímabil hafið þar,
og mörg teikn á lofti um að eldstöðvar í öðrum landshlutum geti gosið á næstunni.
Farið verður yfir bakgrunn eldvirkninnar, óróa í helstu eldstöðvum og vöktun og viðbrögð við eldgosum og jarðskjálftum.
Fyrirlesturinn verður í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Heitt á könnunni og meðlæti.
Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.
Bogi Benediktsson
4. október 2023 11:09