
Hefur þú athugað í hvaða trúfélag þú ert skráð(ur)? Það gæti komið þér á óvart!
Sóknargjöld eru mikilvægur þáttur í að halda úti öflugu kirkjustarfi. Þau styðja meðal annars við barna- og æskulýðsstarf, tónlist, helgihald, fjölskyldustarf og fjölbreyttar samverustundir fyrir fólk á öllum aldri.
Með því að skrá þig í þjóðkirkjuna styður þú við starf kirkjunnar í þínu nærsamfélagi. Sóknargjöldin renna til þeirrar sóknar sem þú tilheyrir og hjálpa til við að skapa lifandi og fjölbreytt kirkjustarf.
En vissir þú að þótt þú sért ekki skráð(ur) í trúfélag greiðir þú samt sömu skatta? Sóknargjöld eru ekki sérstakur skattur sem fellur niður ef þú stendur utan trúfélaga. Þess í stað verður samsvarandi fjárhæð eftir í ríkissjóði, en rennur ekki til safnaðarstarfs.
Nú er góður tími til að athuga skráninguna þína!
Skráning í trú- og lífsskoðunarfélag miðast við 1. desember þegar sóknargjöld næsta árs eru ákvörðuð.
Athugaðu skráninguna þína á Ísland.is og skráðu þig í þjóðkirkjuna ef þú vilt styðja við starfið.
Þín skráning skiptir máli – fyrir kirkjuna og samfélagið okkar.
Katrín Valdís Hjartardóttir
20. nóvember 2026 11:19

