Handavinnustarfið Vinavoðir fer vel af stað í Lágafellssókn og var fyrsta samveran bæði hlýleg og notaleg. Þar kom fólk saman með prjóna og heklunálar, naut góðs félagsskapar og lagði sitt af mörkum til fallegs verkefnis. Þessa fyrstu samveru fengum við góða heimsókn úr Vinavoðum Njarðvíkurkirkju sem var einstaklega ánægjulegt.

Vinavoðir er kærleiksverkefni þar sem prjónað og heklað er fyrir fólk sem glímir við veikindi, sorg eða stendur á tímamótum í lífinu. Markmiðið er að sýna hlýhug og umhyggju með handgerðum gjöfum sem geta veitt gleði og huggun þegar á þarf að halda.

Allir eru hjartanlega velkomnir að taka þátt í Vinavoðum á fimmtudögum kl. 13–15 í safnaðarheimili Lágafellskirkju, Þverholti 3. Það er tilvalið að koma með handavinnuna sína, njóta samverunnar og láta gott af sér leiða.

Verkefnið tekur einnig með þökkum á móti garni sem nýst getur við prjónaskapinn og heklið. Hægt er að koma með garn í safnaðarheimilið á þriðjudagsmorgnum eða hafa samband við Guðlaugu Helgu í síma 779-8388 eða með tölvupósti á gudlaughelga@kirkjan.is.

Við hlökkum til áframhaldandi góðra samverustunda og hvetjum alla sem hafa áhuga til að líta við.

Katrín Valdís Hjartardóttir

11. nóvember 2026 14:01

Deildu með vinum þínum