
Sunnudaginn næstkomandi 28. júní kl. 14:00 verður árleg Ólafíumessa við brjóstmynd Ólafíu Jóhannsdóttur sem stendur við Mosfellskirkju. Sr. Arna Grétarsdóttir þjónar, Bjarmi Hreinsson spilar á harmoniku og konur úr Hvítabandinu og Kvenréttindafélaginu taka þátt í athöfninni.
Lagður verður blómsveigur við brjóstmyndina til minningar um trúkonuna Ólafíu.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur að messu lokinni.
Öll velkomin!
Katrín Valdís Hjartardóttir
24. júní 2026 15:05

