
Þann 5. maí síðastliðinn var súpu samvera hér í safnaðarheimili Lágafellskirkju þar sem kom fólk úr bænum að borða saman og eiga góða samverustund í bæn og brauði/súpu.
Hún Þórdís okkar Ásgeirsdóttir djákni færði þá sókninni góða og fallega gjöf, stóra skál og kertastjaka með fiskamynstri og gyllingu. Munirnir eru listmunir eftir Ingu Elínu leirlistarkonu.
Þessi gjöf er tileinkuð Bylgju Dís Gunnarsdóttir sem féll frá á síðasta ári. Hún var formaður kyrrðarbænasamtakanna á Íslandi og frumkvöðull í að koma kyrrðarbæninni, ásamt öðrum kristnum íhugunaraðferðum á framfæri.
Skálin og kertastjakinn eru afar fallegir munir sem munu koma að góðum notum hér í safnaðarheimilinu t.d. í skírnarathöfnum og við fleiri hátíðleg tilefni.
Við kunnum Þórdísi hjartans þakkir fyrir þessa góðu gjöf.

Katrín Valdís Hjartardóttir
26. maí 2026 13:34

