
Kyrrðarmorgun að vori var haldinn í Lágafellskirkju 16. maí síðast liðinn. Fjórtán þátttakendur nutu þess að sitja í kyrrðarbæn og taka þátt í biblíulegri íhugun. Þátttakendur gátu svo valið um að fara í náttúru íhugun í upplandi Mosfellsbæjar eða sjónræna íhugun í kirkjunni.
Mynd: Bára Friðriksdóttir
Katrín Valdís Hjartardóttir
19. maí 2026 13:42

