Okkur hjá Kirkjugörðum Lágafellssóknar var boðið á vinnufund Kirkjugarða Reykjavíkur með verktökum.
Tilgangur fundarins var að efla samstarfs á milli aðila á þessum vettvangi og fara yfir verklag og reglur sem gilda um kirkjugarðana.
Fundurinn var ákaflega gagnlegur og fögnum við öllu samstarfi.
🌼 Þar sem farið er að glitta í vorið vekjum við athygli á að sækja þarf um leyfi til að vinna í kirkjugörðunum, þ.e þegar minnisvarði er settur upp þarf að sækja um leyfi hjá umsjónarmanni Kirkjugarða Lágafellssóknar, þá er mikilvægt að hafa kynnt sér reglur um stærð minnisvarða og fleira.
Mælst er til að það líði að minnsta kosti ár frá jarðsetningu þar til steinn er settur upp. Þegar minnisvarði hefur verið settur upp er það á ábyrgð aðstandenda fjarlægja trékrossa, flokkunartunnur garðanna taka ekki við krossum.
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri Lágafellssóknar og umjón með kirkjugörðum

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir

16. apríl 2026 15:07

Deildu með vinum þínum