
Þriðjudaginn 7. apríl síðastliðinn var fyrsta bænastund og súpusamvera vorsins í safnaðarheimili Lágafellskirkju. Sérstakur gestur stundarinnar var Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands og var henni að vonum vel tekið. Guðrún hafði með sér biskupskápuna og sagði frá tilurð hennar og sýndi hana gestum sem mættir voru.

Friðartrefill
Þórdís djákni færð Guðrúnu biskup friðartrefil að gjöf sem hún sjálf hafði prjónað

Að lokinni bænastundinni var haldinn fundur með biskupi um starfsemi nýs Esjuprestakalls

Við þökkum Guðrúnu Karls Helgudóttur og öllum þeim sem mættu í bænstund og súpusamveru kærlega fyrir heimsóknina
Við minnum á að næsta bænastund og súpusamvera verður þriðjudaginn 5. maí í safnaðarheimili Lágafellskirkju.
Katrín Valdís Hjartardóttir
9. apríl 2026 14:10

