Sóknarnefnd Lágafellssóknar
Sóknarnefndarfundur: 21. janúar kl. 17.00.
Fundargerð
Mættir voru safnaðarpresturinn Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttur og framkvæmdastjóri Jóhanna Ýr Jóhannsdóttur. Eftirtaldir aðalmenn mættu: Elísabet Sigurveig Ólafsdóttir sóknarnefndarformaður, Haraldur Sigurðsson, Halla Karen Kristjánsdóttir, Guðmundur Jónsson og Valgerður Magnúsdóttir.
Varamenn voru mættir: Björn Ó Björgvinsson, Brynhildur Sveinsdóttir, og Kristín Edda Guðmundsdóttir
Fjarverandi og forföll: Sigurður Óli Karlsson og Örn Jónasson.
- Formaður sóknarnefndar setti fundinn og bauð fundarfólk velkomið.
- Safnaðarprestur leiðir fund með lestri „Óður til kærleikans“ úr seinna Kórintubréfi, og benti hún á breytta tíma í heiminum um þessar mundir. Hún sagði svokallaða úlfasund ganga mjög vel og að eldri borgarastarf fari af stað aftur.
- Farið var yfir fundargerð frá 2. desember og var hún samþykkt.
- Framkvæmdastjóri fór yfir framkvæmdir á Mosfelli. Fram kom í máli framkvæmdastjóra að vel gengi að klæða turn kirkjunnar og að styttist í verklok að utan. Verið er að klæða turninn með kopar. Einnig er unnið að smíði innréttinga innanhúss, s.s. á salerni o.fl. Framkvæmdastjóri kynnti tilboð í stóla fyrir kirkjuna, svo og áætlun um viðgerðir á bekkjum og/eða endurnýjun þeirra. Engin ákvörðun var tekin að svo stöddu.
- Formaður sóknarnefndar greindi frá því að leigusamningi um land sem sóknin á í Mosfellsdal hafi verið sagt upp, og hugmyndir séu uppi um að selja landið. Verið sé að vinna verðmat á landinu.
- Samþykkt var að kaupa a.m.k. 11 fermingarkyrtla til viðbótar þeim sem fyrir eru.
- Farið var yfir nokkur atriði varðandi úttekt HMS á raflögnum í Lágafellskirkju.
- Samþykkt var að taka tilboði Garðaþjónustu Sigurjóns um hirðingu kirkjugarðanna í sumar.
- Næsti fundur er áætlaður 18. febrúar 2026
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir
20. febrúar 2026 11:33

