Í Gaman saman fimmtudaginn 11. apríl kl. 14 – 16 verður Ingi Þór Ágústsson forstöðumaður þjónustu á Eirhömrum heldur fyrirlestur um nýja nálgun í þjónustu eldri borgara í Mosfellsbæ

Fyrirlesturinn verður í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 3. hæð. Heitt á könnunni og meðlæti.

Verið velkomin!

Í vetur mun Lágafellssókn vera í samstarfi með félagsstarfi eldri borgara í Mosfellsbæ, taka þátt og vera hluti af starfinu Gaman saman. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur mun leiða starfið fyrir hönd Lágafellssóknar. Við fáum í bland áhugaverða fyrirlesara, tónlistarfólk og aðra góða gesti í heimsókn. Samverurnar okkur mun fara fram annanhvern fimmtudag í safnaðarheimili Lágafellssóknar Þverholti 3, þriðju hæð frá kl. 14-16 til skiptis við samverurnar að Eirhömrum.

Bogi Benediktsson

10. apríl 2024 17:03

Deildu með vinum þínum