Næsta fimmtudag 4. apríl kl. 17 í safnaðarheimilinu verður úlfastund en þá ætlum við að prófa að hafa dagskrá á báðum hæðunum. Á 2. hæðinni hefst úlfastundin með sunnudagaskóla en á sama tíma verður fræðsla fyrir foreldra á 3. hæðinni. Lára talmeinafræðingur verður með fræðslu um hvernig foreldrar geti örvað málþroska barna. Fræðslan verður í skemmtilegu ,,sýnir og segir“ (e. Show and tell) formi. Fyrir þau yngstu sem ekki treysta sér að vera án foreldris þá verður líka í boði leikföng á 3. hæðinni á meðan fræðslunni stendur. Úlfastundin endar svo alltaf kl. 18issh með mat og samfélagi.
 
Ókeypis starf en skráning nauðsynleg upp á mat að gera inn á lagafellskirkja.is (sjá neðst í frétt eða skanna QR kóðann til að skrá)
 
Öll hjartanlega velkomin, stór og smá!

    Skráning í mat á úlfastund fimmtudaginn 2. maí kl. 18issh
    (Best að skrá sig í hvert skiptið en ný skráning opnast eftir hverja stund)

    Matur: Grjónagrautur með kanilsykri, rúsínum og slátri. Drykkir: Vatn, djús og kaffi. Gert verður ráð fyrir fæðuóþoli í innkaupum en endilega skráið í athugasemdir til öryggis

    Nafn foreldris

    Sími foreldris

    Fjöldi úlfa (fullorðnir)

    Fjöldi ylfinga (börn...)

    Athugasemdir (fæðuóþol ofl.)

    Bogi Benediktsson

    2. apríl 2024 14:21

    Deildu með vinum þínum